|
Saturday, March 03, 2007
Hæ! Thursday, March 01, 2007
Hmmm.... Wednesday, February 28, 2007
It's alive.. Jújú, konan er á lífi... svona að nafninu til allavegna. Hugurinn er oftast nær heima og get ég varla beðið eftir að skólinn klárist. Þetta er að verða full erfitt... Tuesday, February 20, 2007
Alltaf á nágrannavaktinni.. Um daginn var ég búin að koma mér vel fyrir í sófanum fyrir framan imbann. Það vildi svo skemmtilega til að þar sem ég sat, hafði ég líka þetta fína útsýni yfir í fjölbýlið á móti okkur. Mér var eitthvað litið út um gluggann í einu auglýsingahléinu og haldiði ekki bara að við mér hafi blasað þessi líka "kappalegi" kínverji sem var að æfa sig í kung fú fyrir framan eldhúsgluggann. Hann hefur sennilega verið að horfa á spegilmyndina í glugganum enda flottur gaur.... já eða þannig sko. Thursday, February 15, 2007
Smá tilkynning. Ég er viss um að þið eruð öll búin að bíða þessa andartaks með eftirvæntingu. Ég hafði hugsað mér að bíða með að segja ykkur fréttirnar en ég get bara ekki beðið lengur.......... Þá er komið að því. Eruð þið tilbúin? Ég heiti Arna og er algert júróvisjonnörd. Ég bíð laugardagsins með eftirvæntingu því þá mun aðalkosningin á framlagi okkar í ár fara fram. Tuesday, February 13, 2007
Hæll, tá, hæll, tá... Við Van vorum eitthvað spenntar fyrir að fara út og hreyfa okkur og ákváðum því að skella okkur á dansnámskeið. Rákumst á auglýsingu í einu dagblaðinu sem hljómaði voðalega girnilega: "Lærið að dansa eins og í sjónvarpsþáttunum 'Strictly come dancing.'" sem var voðalega vinsæll hér á heimilinu fyrir jól. Allavegna ákváðum við að láta slag standa og drifum okkur á staðinn. Humm... það sem við blasti var félagsmiðstöð eldri borgara, meðalaldurinn sennilega í kring um 50 ár. Án þess að ræða það eitthvað frekar, snerum við við á staðnum og skelltum okkur á pöbbinn í staðinn. Tuesday, February 06, 2007
Tataa! Er eitthvað voðalega andlaus núna. Hreiðraði um mig í myrkrakompunni í gær og í dag, framkallaði 5 rúllur af filmum og gerði tilraun til að stækka nokkrar í dag. Stækkarinn var með móral... sennilega ennþá þunnur eftir helgina svo að ég gafst upp og gerði þær bara stafrænar. Fór reyndar ótroðnar slóðir við að skanna þær þar sem enginn kennari var nálægt til að sýna mér hvernig ætti að nota filmuskannann og þar af leiðandi er dálítið spes áferð á myndunum. Þetta verður samt að duga í bili. Friday, February 02, 2007
Humm.... Ég var á fyrirlestri í dag og missti hökuna niðrí gólf, ekki einu sinni heldur tvisvar. Ég er bara ekki vön því að heyra kennara nota MILF orðið. Thursday, February 01, 2007
Jahá... ...svona lagað vill stundum gerast þegar manni leiðist. Friday, January 26, 2007
Nýtt ár, nýtt blogg Sælt veri fólkið og gleðilegt ár og allt það... better late than never ekki satt? Þá er bara að reyna að koma sér í gömlu rútínuna aftur. Hélt "presentation" í skólanum í morgun á arkítektúrnum og tískunni. Það gekk ágætlega miðað við aðstæður en ég var ekki upp á mitt besta þegar ég vaknaði í morgun. Túrverkir, kaldur sviti, ógleði og náhvítt andlit eru ekki neitt sérlega góð blanda og voru kennararnir snöggir að senda mig heim þegar ég var búin að fara í gegnum myndirnar mínar. Strætóferðin í síðustu færslu bliknar í samanburði við þá sem ég átti á leiðinni út skólanum í dag; "bara eitt stopp í viðbót, bara eitt stopp í viðbót, ekki æla, ekki æla....." ferlega grafísk frásögn eitthvað... hehe. Annars er bara mikil tilhlökkun í gangi hjá minni. Spennandi önn framundan, fullt af skemmtilegum verkefnum svo ekki sé minnst á útskrift í vor. Skrítið samt að hugsa til þess að ég sé að klára... hvað tekur við? Ég þori ekki að hugsa svo langt.. tíminn líður nú þegar hraðar en ég ræð við. En jæja, þetta er komið út í tóma vitleysu. Kveð með arkitektúrmyndinni sem sló í gegn fyrr í dag. Einhverjir hafa nú séð hana áður en hvað um það... maður má nú alveg monta sig aðeins, ha?:) Later! ![]() Bátalyfta í bænum Falkirk, ca 40 mínútna akstri frá Edinborg.
|
Profile ![]() .::bloggin::. valurinn minn! didda frúin jóhanna þórunn sigrún þöll eva dagbjört hrafndís og félagar sigga hulda karólína doctor hoover auður zoega ágústa bjarna siggi boggi .::ýmislegt::. kvitta hér!! myndaalbúm nýtt og betra myndaalbúm Tag Board Calendar
Links
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||