|
Friday, January 26, 2007
Nýtt ár, nýtt blogg Sælt veri fólkið og gleðilegt ár og allt það... better late than never ekki satt? Þá er bara að reyna að koma sér í gömlu rútínuna aftur. Hélt "presentation" í skólanum í morgun á arkítektúrnum og tískunni. Það gekk ágætlega miðað við aðstæður en ég var ekki upp á mitt besta þegar ég vaknaði í morgun. Túrverkir, kaldur sviti, ógleði og náhvítt andlit eru ekki neitt sérlega góð blanda og voru kennararnir snöggir að senda mig heim þegar ég var búin að fara í gegnum myndirnar mínar. Strætóferðin í síðustu færslu bliknar í samanburði við þá sem ég átti á leiðinni út skólanum í dag; "bara eitt stopp í viðbót, bara eitt stopp í viðbót, ekki æla, ekki æla....." ferlega grafísk frásögn eitthvað... hehe. Annars er bara mikil tilhlökkun í gangi hjá minni. Spennandi önn framundan, fullt af skemmtilegum verkefnum svo ekki sé minnst á útskrift í vor. Skrítið samt að hugsa til þess að ég sé að klára... hvað tekur við? Ég þori ekki að hugsa svo langt.. tíminn líður nú þegar hraðar en ég ræð við. En jæja, þetta er komið út í tóma vitleysu. Kveð með arkitektúrmyndinni sem sló í gegn fyrr í dag. Einhverjir hafa nú séð hana áður en hvað um það... maður má nú alveg monta sig aðeins, ha?:) Later! ![]() Bátalyfta í bænum Falkirk, ca 40 mínútna akstri frá Edinborg. Posted at 04:10 pm by arnarun
|
Profile ![]() .::bloggin::. valurinn minn! didda frúin jóhanna þórunn sigrún þöll eva dagbjört hrafndís og félagar sigga hulda karólína doctor hoover auður zoega ágústa bjarna siggi boggi .::ýmislegt::. kvitta hér!! myndaalbúm nýtt og betra myndaalbúm Tag Board Calendar
Links
| ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||