Jújú, konan er á lífi... svona að nafninu til allavegna. Hugurinn er oftast nær heima og get ég varla beðið eftir að skólinn klárist. Þetta er að verða full erfitt...
Vill einhver skipta við mig? Haha...
Nei sem betur fer styttist dvölin með hverjum deginum. En samt er ég með móral því mér finnst eins og ég sé ekki að njóta dvalarinnar til fulls sem er dálítið skítt... það er bara dálítið erfitt þegar maður er einn úti í rassg**i, fjarri öllum sem skipta mann máli. Jújú, life is a bitch ekki satt? Eeen enough is enough... hætt að væla í bili.
Annars er það helst að frétta að ég er búin að velja mér lokaverkefni. Það tók á... langaði til að gera allt og er búin að skipta um skoðun oftar en einu sinni og oftar en tvisvar... spyrjið bara mömmu! Haha..
En við áttum semsagt að velja okkur einskonar sérhæfingu fyrir lokaverkefnið, t.d. tískuljósmyndun, arkítektúrljósmyndun, blaðaljósmyndun... u name it, og skila 30+ myndum í lok annarinnar. Ég ákvað að velja portrett ljósmyndun því það er svo rosalega víðtækt viðfangsefni. Með þessu móti ætti ég að fá flotta þjálfun í stúdíóportrettum, umhverfisportrettum, portrettum á "location"(hvað er íslenska orðið?) og svo er ég jafnvel að spá í að taka einhver sjálfsportrett þannig að það verður nóg að gera. Það er kannski bara eins gott, það ætti aðeins að dreifa huganum frá heimþránni. Ég er allavegna orðin svakalega spennt fyrir verkefninu, er með milljón hugmyndir í kollinum og hlakka mikið til að takast á við það. Það er góðs viti, er það ekki?:)
Það eru komnar nokkrar nýjar myndir inn á Flickr-inn minn... skrapp niður á strönd fyrr í vikunni og smellti af nokkrum römmum. Það var ansi ljúft, ég fékk svona útlandafíling... nokkuð spes.
Later guys...