|
Friday, December 15, 2006
I`m your private dancer, a dancer for money... Það er ekki alltaf sem strætóferðir enda með einkadansi... er að reyna að hugsa upp eitthvað gott sviðsnafn og fara að taka gjald fyrir. Monday, December 11, 2006
Blah.. Sumir dagar eru einfaldlega verri en aðrir.... held samt að þessi komist á topp 5. Eins gott að ég tók Tópaspela með mér út. Friday, December 08, 2006
Og alltaf styttist! Jáh haldiði ekki bara að enn ein vikan sé búin hér í hálöndunum. Alltaf styttist í heimferð... það sem mig er farið að hlakka til! Valur kom og hélt bólinu heitu fyrir mig frá fimmtudegi til þriðjudags... hann fékk frítt húsaskjól gegn því að sinna módelstörfum sem gengu býsna vel. Menn þurfa nú aðeins að vinna fyrir hlutunum ekki satt? Haha... Sýndi kennaranum mínum öll verkefnin í dag og fékk þau samþykkt þannig að núna þarf ég bara að klára eitt stykki heimasíðu sem er á góðu róli og þá er ég búin... í bili. Sweeet! Er að hugsa um að eyða síðustu dögunum hérna úti í myrkrakompunni í skólanum og rifja upp gamla takta, fjárfesti nefnilega í myrkrakompudóti heima á Íslandi í vikunni og bíð þess með eftirvæntingu að fá að setja það upp og dunda í myrkrinu. Veit fátt skemmtilegra! Að sjálfsögðu eru hamingjuóskir vel þegnar enda gamall draumur loks að rætast... :D Jæja, verð að rjúka. Later! Monday, November 27, 2006
Fráhvörf? Jæja, er búin að poppa og koma mér vel fyrir í sófanum. Heimildarmyndin The Perfect Penis var að hefjast. Spurning um að opna einn bjór svona til hátíðarbrigða? Later guys! Sunday, November 26, 2006
Daddara.. Ég hef grun um að íbúarnir í íbúðinni fyrir ofan okkur hafi verið að kaupa sér kennslumyndband Michael Flatley í Riverdance. Ætti ég að banka uppá og athuga hvort ég megi vera memm? Sunday, November 19, 2006
Það hlaut að koma að því.... .. ég er farin að drekka te eins og ég fái borgað fyrir það. Wednesday, November 15, 2006
Flensan mætt... Maður þarf víst ekkert endilega að vera staddur á Íslandi til þess að fá flensu... greinilega ekkert séríslenskt fyrirbæri. Er ekki alveg að nenna að standa í þessu núna. Er búin að liggja uppi í rúmi og sófa til skiptis með hitapoka á mallanum. Var nú samt eiginlega hætt að standa á sama þegar ég sá að ég var komin með hitaútbrot undan honum... spurning hvort maður sé að óverdósa? Thursday, November 09, 2006
Kynhlutverk í Köben.. Ein af mínum fyrstu minningum er ferðalag með fjölskyldunni til Köben. Þar gistum við í heimagistingu hjá skrítinni gamalli konu sem átti snaróðan varðhund og var þar að auki með risastóran köngulóarlímmiða á klósettinu hjá sér... nokkuð sem mér fannst ekki eiga við svona ömmulega kerlu. Sunday, October 29, 2006
Daman er mætt! Loksins lét skvísan sjá sig; 52 cm og 15 merkur, ofurfalleg, rauðhærð og með krúttlegt hökuskarð. Er víst alger draumur! Get varla beðið eftir að dekra hana í ræmur:) Bið að heilsa í bili. Kv. Arna Tuesday, October 10, 2006
2 dagar... Ég er búin að sjá það að ég er afskaplega hæfileikarík manneskja. Ekki hef ég eingöngu þann hæfileika að ná að snúa sólarhringnum við vikulega heldur líka þann einstaka hæfileika vera á köflum ófær um að hugsa í hljóði og standa mig því að því að tala upphátt við sjálfa mig. Ósjaldan stend ég fólk að því að gjóa augunum til mín þar sem ég rökræði við sjálfa mig hvort ég eigi að kaupa mér dömubindi með eða án blómailms.
|
Profile ![]() .::bloggin::. valurinn minn! didda frúin jóhanna þórunn sigrún þöll eva dagbjört hrafndís og félagar sigga hulda karólína doctor hoover auður zoega ágústa bjarna siggi boggi .::ýmislegt::. kvitta hér!! myndaalbúm nýtt og betra myndaalbúm Tag Board Calendar
Links
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||