Entry: Nýtt ár, nýtt blogg Friday, January 26, 2007



Sælt veri fólkið og gleðilegt ár og allt það... better late than never ekki satt?

Þá er bara að reyna að koma sér í gömlu rútínuna aftur. Hélt "presentation" í skólanum í morgun á arkítektúrnum og tískunni. Það gekk ágætlega miðað við aðstæður en ég var ekki upp á mitt besta þegar ég vaknaði í morgun. Túrverkir, kaldur sviti, ógleði og náhvítt andlit eru ekki neitt sérlega góð blanda og voru kennararnir snöggir að senda mig heim þegar ég var búin að fara í gegnum myndirnar mínar. Strætóferðin í síðustu færslu bliknar í samanburði við þá sem ég átti á leiðinni út skólanum í dag; "bara eitt stopp í viðbót, bara eitt stopp í viðbót, ekki æla, ekki æla....." ferlega grafísk frásögn eitthvað... hehe. 

Annars er bara mikil tilhlökkun í gangi hjá minni. Spennandi önn framundan, fullt af skemmtilegum verkefnum svo ekki sé minnst á útskrift í vor. Skrítið samt að hugsa til þess að ég sé að klára... hvað tekur við? Ég þori ekki að hugsa svo langt.. tíminn líður nú þegar hraðar en ég ræð við. 

En jæja, þetta er komið út í tóma vitleysu.
Kveð með arkitektúrmyndinni sem sló í gegn fyrr í dag. Einhverjir hafa nú séð hana áður en hvað um það... maður má nú alveg monta sig aðeins, ha?:)

Later!



Bátalyfta í bænum Falkirk, ca 40 mínútna akstri frá Edinborg.

   4 comments

arnaphoto
January 31, 2007   10:41 AM PST
 
Takk f. það elskurnar:)
Sigrún: Mývatnsmyndirnar komu bara nokkuð vel út.
Margrét
January 31, 2007   02:13 AM PST
 
Váá flott mynd!
Sigrún Þöll
January 28, 2007   01:19 PM PST
 
Mjög flott mynd!...en hvernig komu Mývatnsmyndirnar svo út?
Þórunn
January 28, 2007   09:31 AM PST
 
Geggjuð mynd :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments