Entry: Tataa! Tuesday, February 06, 2007



Er eitthvað voðalega andlaus núna. Hreiðraði um mig í myrkrakompunni í gær og í dag, framkallaði 5 rúllur af filmum og gerði tilraun til að stækka nokkrar í dag. Stækkarinn var með móral... sennilega ennþá þunnur eftir helgina svo að ég gafst upp og gerði þær bara stafrænar. Fór reyndar ótroðnar slóðir við að skanna þær þar sem enginn kennari var nálægt til að sýna mér hvernig ætti að nota filmuskannann og þar af leiðandi er dálítið spes áferð á myndunum. Þetta verður samt að duga í bili. 



Valdi nokkrar til að setja á Flickr-inn en á eftir að skanna inn fleiri. Náði aðeins að klára 2 filmur af 5 svo að það er af nógu að taka.

Later!

   1 comments

Sigrún Þöll
February 7, 2007   02:54 PM PST
 
Ég er soldið skotin í myndasíðunni þinni..hún er flott. Farðu svo að koma heim svo ég geti rifjað upp allt sem þú kenndir mér ;)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments